Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 13. október 2019 13:46
Elvar Geir Magnússon
Óttast að Alexis Sanchez verði lengi frá
Alexis Sanchez.
Alexis Sanchez.
Mynd: Getty Images
Óttast er að Alexis Sanchez, leikmaður Inter, verði lengi frá eftir að hafa meiðst á ökkla í landsleik með Síle.

Sanchez er hjá Inter á lánssamningi frá Manchester United en hann fór meiddur af velli í markalausu jafntefli gegn Kólumbíu í gær.

Hann er farinn aftur til Mílanó þar sem hann fer í frekari skoðanir.

Í yfirlýsingu frá knattspyrnusambandi Síle er sagt að óttast sé að Sanchez þurfi í aðgerð.

Sanchez er 30 ára og hefur spilað fjóra leiki fyrir Inter og skorað eitt mark.
Athugasemdir
banner
banner