Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 14. janúar 2023 14:48
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Bruno: Við lítum út eins og lið núna
Mynd: EPA

Bruno Fernandes var í viðtali hjá BT Sport eftir sterkan sigur Manchester United í grannaslagnum gegn City.


Það er allt annað að sjá United liðið undir stjórn Erik ten Hag en það sem á undan hafði gengið.

„Ég sagði við liðið fyrir leik: Við lítum út eins og lið núna, fyrir einhverju síðan vorum við stundum eins og lið og stundum að hugsa um okkur sjálfa. Núna sérðu alvöru lið sem vinnur fyrir hvorn annan og það skilar sér," sagði Bruno.

Fyrra mark United var ansi umdeilt en Bruno er fastur á því að það hafi verið rétt að dæma það gilt.

„Rashford hefur séð að ég var í betri stöðu, þetta hafði engin áhrif þar sem það var enginn nálægt honum. Það var einn nálægt mér," sagði Bruno.


Athugasemdir
banner
banner