Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 14. mars 2024 20:25
Ívan Guðjón Baldursson
Fulham reynir að halda í Adarabioyo
Mynd: EPA
Fulham er búið að bjóða miðverðinum Tosin Adarabioyo nýjan og endurbættan samning, en núverandi samningur hans við félagið rennur út komandi sumar.

Adarabioyo hefur verið orðaður við ýmis félög undanfarna mánuði en hann hefur verið afar öflugur í hjarta varnarinnar hjá Fulham að undanförnu og lítur Marco Silva þjálfari á hann sem lykilleikmann.

Inter, Tottenham og West Ham eru meðal félaga sem hafa verið orðuð við Adarabioyo, sem ætlar ekki að flýta sér að taka ákvörðun.

Hann getur valið sinn næsta áfangastað þegar samningurinn við Fulham rennur út í sumar.
Athugasemdir
banner
banner