Varane, Diaz, Matip, Yamal, Davies og Rashford koma við sögu
   fim 14. mars 2024 23:00
Ívan Guðjón Baldursson
Lengjubikarinn: KÁ rúllaði yfir Úlfana
Mynd: Facebook-síða KÁ
Úlfarnir 0 - 5 KÁ
0-1 Bjarki Sigurjónsson ('22 )
0-2 Ágúst Jens Birgisson ('61 )
0-3 Bjarki Sigurjónsson ('70 , Mark úr víti)
0-4 Ólafur Sveinmar Guðmundsson ('80 )
0-5 Bjarki Sigurjónsson ('85 )

Úlfarnir og KÁ áttust við í síðasta leik dagsins í Lengjubikarnum og tók KÁ forystuna í fyrri hálfleik, þegar Bjarki Sigurjónsson skoraði á 22. mínútu.

Staðan var 0-1 í leikhlé og opnuðust flóðgáttirnar í síðari hálfleik, þegar KÁ stakk af.

Bjarki átti eftir að bæta tveimur mörkum við leikinn til að fullkomna þrennuna sína og þá komust Ágúst Jens Birgisson og Ólafur Sveinmar Guðmundsson einnig á blað.

KÁ er með fullt hús stiga eftir þrjár fyrstu umferðirnar í C-deild Lengjubikarsins. Úlfarnir eiga aðeins eitt stig.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner