Guimaraes, Isak, Kimmich, Diaz, Branthwaite, Mainoo og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   sun 14. júlí 2019 20:31
Arnar Helgi Magnússon
Griezmann fær ekki sjöuna frá Coutinho
Mynd: Getty Images
Antoine Griezmann mun mæta á sína fyrstu æfingu sem leikmaður Barcelona í fyrramálið.

Fyrr í dag var hann kynntur fyrir stuðningsmönnum á Camp Nou og í leiðinni var treyjunúmer hans opinberað. Hann mun spila í treyju númer 17.

Hann spilaði í treyju númer sjö hjá Atletico Madrid og gerir það einnig með franska landsliðinu. Orðrómar um að hann tæki sjöuna af Philippe Coutinho brutust út eftir að tilkynnt var um félagaskiptin á föstudag.

Framtíð Philippe Coutinho er óljós en hann hefur verið orðaður burt frá félaginu. Þrátt fyrir það lætur hann treyjunúmerið ekki af hendi.

Griezmann mun síðan ferðast með liðinu til Japan þar sem að liðið mun leika æfingaleiki, til dæmis gegn Chelsea.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner