Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 14. júlí 2021 13:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
„Við þurfum einhvern góðan leikmann inn"
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Sigurður Heiðar Höskuldsson, þjálfari Leiknis, var spurður að því í viðtali eftir sigur Leiknis gegn ÍA hvort hann ætli sér að styrkja leikmannahópinn frekar í þessum félagsskiptaglugga.

Leiknir hefur þegar keypt Hjalta Sigurðsson frá KR.

Lestu um leikinn: Leiknir R. 2 - 0 ÍA

„Já, við erum aðeins að skoða hvað við getum gert. Markaðurinn er erfiður og allt það en það er ekkert sem er komið eitthvað áfram," sagði Siggi.

Hann var spurður hvaða stöður hann væri að horfa í til að styrkja hópinn.

„Ég er að skoða eitthvað fram á við en það er ekkert fast einhver staða. Við þurfum bara einhvern góðan leikmann inn til þess að breikka þetta aðeins og þá erum við í góðum málum," sagði Siggi.

Viðtalið í heild sinni má sjá hér að neðan.
Siggi Höskulds: Virkilega ánægjulegt
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner