Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Brynjar Björn útskýrir útlendingafjöldann
Ómar Ingi: Legghlífunum hans var stolið
Vill breytingar eftir tæklingu Grétars - „Getur eyðilagt ferla hjá mönnum"
Sætasti strákurinn á ballinu - „Hann er 39 ára í líkama sextugs manns"
Bræður eigast við í bikarnum - Síðasta tækifærið að mæta Birki
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
   þri 14. ágúst 2018 20:50
Ingólfur Páll Ingólfsson
Gummi Magg: Eins og menn hafi aldrei fengið mark á sig áður
Guðmundur er búinn að vera flottur með Fram í sumar.
Guðmundur er búinn að vera flottur með Fram í sumar.
Mynd: Fótbolti.net - Bára Dröfn Kristinsdóttir
Guðmundur Magnússon, fyrirliði Fram var ekki sáttur með úrslitin í kvöld og fannst eins og sínir menn hefðu ekki trú á verkefninu.

Lestu um leikinn: ÍA 2 -  0 Fram

Fram tapaði fyrir toppliði ÍA með tveimur mörkum gegn engu og Guðmundi fannst eins og liðið hefði gefist upp eftir fyrra markið.

Það var bara, fyrir mér leit þetta bara þannig út að menn hefðu ekki trú á þessu. Fínn fyrri hálfleikur, þegar við spiluðum þá gerðum við það vel, vorum of værukærir stundum. Seinni hálfleikurinn, fáum á okkur mark og það er eins og menn hafi aldrei fengið mark á sig áður, allir detta niður. Gerir það að verkum að þeir komast í 2-0. Þetta er bara óskiljanlegt, við förum yfir hlutina daginn fyrir leik í hvert einasta skipti. Ég veit ekki hvað þarf að gera til að menn nái þessu, ” sagði Guðmundur.

Fram hefur verið að skora mikið í undanförnum leikjum en misst þá niður í jafntefli og í dag var eins og liðið hefði gefist upp eftir fyrra markið.

Þetta er bara eitthvað sálrænt, ég veit ekki hvað er í gangi. Það er eins og við þurfum að fá okkur mark til þess að komast í gang. Að þessu sinni gekk það ekki en við þurfum heldur betur að taka okkur saman í andlitinu ef við ætlum að gera eitthvað í þessari deild, ” sagði Guðmundur.

Spilamennska Fram í sumar hefur verið góð og margt gott sem er hægt að byggja á upp á framhaldið.

Ég sagði það í vikunni í eitthverju viðtali að þetta eru ungir strákar sem eru að spila og þeir fá fullt hrós fyrir það sem þeir eru að gera og það er ekkert við þá að sakast. Við þurfum að byggja á þetta og halda áfram, bara bæta okkur,” sagði Guðmundur.

Viðtalið við Guðmund má sjá í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner