Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   sun 14. nóvember 2021 10:40
Aksentije Milisic
Arsenal tilbúið að selja Pepe fyrir einungis 25 milljónir punda
Mynd: Getty Images
Arsenal er sagt vera tilbúið til þess að selja Nicolas Pepe fyrir einungis 25 milljónir punda.

Þessi vængmaður kom til Arsenal frá Lille fyrir heilar 72 milljónir punda árið 2019 en þá var Unai Emery í stjórastólnum á Emirates vellinum.

Pepe hefur gengið illa að ná stöðugleika í leik sinn hjá Arsenal og nú virðist sem félagið er búið að fá nóg og tilbúið til að selja hann fyrir ekki hærri upphæð en 25 milljónir punda.

Arsenal vill fá Dejan Kulusevski, leikmann Juventus, í staðinn fyrir Pepe. Kulusevski getur spilað á kantinum og einnig framarlega á miðjunni.

Pepe hefur spilað 98 leiki fyrir Arsenal og skorað 28 mörk. Þá hefur hann gert 15 stoðsendingar. Samningur hans við félagið rennur út árið 2024.
Athugasemdir
banner
banner
banner