Manchester City og Everton eigast við í hádegisleiknum í enska boltanum á morgun, klukkan 12:30.
Hér má sjá líkleg byrjunarlið að mati Guardian og að sjálfsögðu er Gylfi Þór Sigurðsson á sínum stað hjá Everton.
Richarlison er í fremstu víglínu en Pep Guardiola, stjóri City, lýsti því yfir á fréttamannafundi í dag að hann væri mikill aðdáandi Brasilíumannsins.

Sergio Aguero verður líklega í hóp hjá Manchester City en hann hefur misst af síðustu leikjum vegna meiðsla. Kevin De Bruyne er að snúa aftur en leikurinn á morgun kemur væntanlega of snemma fyrir hann.
David Silva er meiddur aftan í læri og er því frá.
Manchester City er í öðru sæti deildarinnar, stigi á eftir Liverpool, en Everton situr í því sjöunda.
Athugasemdir