Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 15. janúar 2023 10:20
Aksentije Milisic
Chelsea býður í Madueke - Liverpool reynir að fá Neves
Powerade
Madueke til Chelsea?
Madueke til Chelsea?
Mynd: EPA
Real vill fá Bellingham.
Real vill fá Bellingham.
Mynd: Getty Images
Neves til Liverpool?
Neves til Liverpool?
Mynd: Getty Images

Madueke, Keita, Antonio, Gallagher, Depay, Bellingham, Elanga og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins. BBC tók allt það helsta saman.
_________________________________


Chelsea hefur boðið 26,5 milljónir punda í hinn tvítuga Noni Madueke, vængmann PSV Eindhoven. (ESPN)

Chelsea reyndi að fá Michail Antonio (32) á láni frá West Ham. Því var hafnað. (Observer)

Crystal Palace mun reyna að fá Conor Gallagher aftur til liðsins en hann er leikmaður Chelsea. Þessi 22 ára gamli leikmaður hefur ekki fengið að spila mikið í bláa búningnum. (Sun on Sunday)

Það liggur ekkert á hjá Barcelona að selja Hollendingin Memphis Depay en það gæti farið sem svo að þessi 28 ára gamli sóknarmaður klári tímabilið hjá Börsungum. (Athletic)

Jude Bellingham (19) verður skotmark númer eitt hjá Real Madrid í félagsskiptaglugganum. (Fichajes)

Everton vill kaupa hinn tvítuga Svía, Anthony Elanga, frá Manchester United. (Football Insider)

Crystal Palace hefur áhyggjur af því að annað lið muni á endanum bjóða meiri pening en Palace í Aaron Wan-Bissaka (25) og kaupa hann frá Manchester United. (Sun on Sunday)

Tottenham mun funda með Sporting Lissabon í þessari viku en Spurs vill kaupa hægri bakvörðinn Pedro Porro. Hann er 23 ára gamall Spánverji. (Sunday Mirror)

Tottenham ætla að bjóða 20 milljónir punda í Piero Hincape, 21 árs gamlan varnarmann Bayer Leverkusen. (Sun on Sunday)

Liverpool er að undirbúa tilboð í miðjumann Wolves, Ruben Neves (25) en hann á einungis 18 mánuði eftir af samningi sínum við Wolves. (Sunday Mirror)

Wolves hefur áhuga á að fá hinn 29 ára gamla Jamall Lascelles, frá Newcastle, ef liðinu tekst ekki að fá Craig Dawson (32), frá West Ham. (Football Insider)

West Ham hefur sett sig í samband við Lorient varðandi sóknarmanninn frá Nígeríu, Terem Moffi (23), en West Ham finnst að Lorient sé að biðja um alltof mikinn pening. Félagið setur 25 milljóna punda verðmiða á Moffi. (Mail on Sunday)

Nottingham Forest er að klára kaupin á Danilo, sem er 21 árs gamall miðjumaður Palmeiras. (90 min)

Arnaut Danjuma, sóknarmaður Villareal, er í London en þessi 25 ára gamli leikmaður er í viðræðum við Bournemouth. (Sun on Sunday)

Southampton vill kaupa tvo úr akademíu Manchester City. Það eru þeir Kian Breckin, sem er 19 ára Englendingur og Carlos Borges sem er 18 ára Portúgali. (Sun on Sunday)


Athugasemdir
banner
banner