Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Brynjar Björn útskýrir útlendingafjöldann
Ómar Ingi: Legghlífunum hans var stolið
Vill breytingar eftir tæklingu Grétars - „Getur eyðilagt ferla hjá mönnum"
Sætasti strákurinn á ballinu - „Hann er 39 ára í líkama sextugs manns"
Bræður eigast við í bikarnum - Síðasta tækifærið að mæta Birki
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
   fös 15. febrúar 2019 22:04
Baldvin Már Borgarsson
Óli Kri: FH fer alltaf í mót til að vinna þau
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Óli Kri var þokkalega sáttur með leik sinna manna gegn Víkíng Reykjavík í Lengjubikarnum nú fyrr í kvöld.

„Já svona að mestu leyti, góður fyrri hálfleikur og góð byrjun á seinni hálfleik síðan komast Víkingarnir yfir þegar við slökum á eftir fína byrjun, þá var ég ekki ánægður með hvernig við fórum í pressu og spiluðum okkur í vandræði.'' Voru fyrstu orð Óla eftir leik.

„Ég er mjög sáttur við undirbúningstímabilið, verið kalt eins og það á að vera, við erum búnir að hlaupa nokkra metra og undirbúa okkur og nú er vika í æfingaferð og eftir hana er þessu undirbúningstímabili formlega lokið.'' Hafði Óli að segja um undirbúningstímabilið hingað til.

„Ef þú ert í toppbaráttu þá áttu möguleika á að vinna deildina og í FH þá förum við alltaf í mót til að reyna að vinna þau.'' Sagði Óli spurður út í pressu á að vinna titilinn.

„Já það er bara að þessir lasarusar komi til baka, Davíð er með bólu í hnéspótinni, Pétur fékk högg í gær og Guðmann er svona að koma til baka, Bjössi fær að spila eftir næsta leik í Lengjubikarnum en hann er ekki löglegur fyrr en tveir leikir eru búnir, það er ágætis liðsstyrkur.'' Sagði Óli spurður út í liðsstyrk.

Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum hér að ofan, en Ólafur er meðal annars spurður út í Grétar Snæ og fleira.
Athugasemdir
banner
banner
banner