Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 15. mars 2021 21:05
Ívan Guðjón Baldursson
Holland: Kristófer Ingi kom við sögu í stórsigri
Mynd: Getty Images
Jong Utrecht 1 - 6 Jong PSV
0-1 S. Sambo ('3)
0-2 J. Proe ('11)
0-3 F. Fofana ('40)
0-4 T. Daverveld ('49)
0-5 F. Fofana ('60)
1-5 M. Mallahi ('64)
1-6 J. Bakayoko ('85)

Kristófer Ingi Kristinsson fékk að spila síðustu tíu mínúturnar er varalið PSV rúllaði yfir varalið Utrecht í hollensku B-deildinni.

Liðsfélagar Kristófers Inga voru búnir að skora fimm mörk áður en hann kom inn af bekknum.

Jong PSV bætti einu marki við eftir innkomu Kristófers og tryggði sér frábæran sigur sem markar enda á þriggja leikja taphrinu.

Jong PSV er með 27 stig eftir 29 umferðir og hefur Kristófer Ingi aðallega verið notaður af bekknum.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner