Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 15. mars 2024 08:18
Elvar Geir Magnússon
Vilja vinna alla bikarana fyrir Klopp
Conor Bradley, leikmaður Liverpool.
Conor Bradley, leikmaður Liverpool.
Mynd: Getty Images
Varnarmaðurinn Conor Bradley hjá Liverpool segir að liðið vilji vinna alla bikara sem eru í boði fyrir stjórann Jurgen Klopp sem lætur af störfum eftir tímabilið.

Liverpool niðurlægði Sparta Prag í Evrópudeildinni og vann einvígið samtals 11-2.

Liverpool er þegar búið að vinna deildabikarinn og getur bætt Evrópudeildinni, ensku úrvalsdeildinni og FA-bikarnum við.

„Klopp er eini stjórinn sem ég hef þekkt hjá þessu félagi og það er leiðinlegt að hann sé að fara. Við viljum bara vinna alla bikara sem eru í boði fyrir hann og kveðja hann á eins góðan hátt og hægt er," segir Bradley.
Athugasemdir
banner
banner