Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Brynjar Björn útskýrir útlendingafjöldann
Ómar Ingi: Legghlífunum hans var stolið
Vill breytingar eftir tæklingu Grétars - „Getur eyðilagt ferla hjá mönnum"
Sætasti strákurinn á ballinu - „Hann er 39 ára í líkama sextugs manns"
Bræður eigast við í bikarnum - Síðasta tækifærið að mæta Birki
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
   lau 15. ágúst 2020 19:32
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Atli Sveinn: Viljum spila töluvert betur en við gerðum í dag
Atli Sveinn Þórarinsson.
Atli Sveinn Þórarinsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Mér fannst Skaginn betri en við í dag," sagði Atli Sveinn Þórarinsson, annar af aðalþjálfurum Fylkis, eftir 3-2 tap gegn ÍA í Pepsi Max-deildinni.

Lokamínúturnar voru dramatískar. Fylkir jafnaði á 84. mínútu og ÍA skoraði sigurmark sitt í uppbótartíma leiksins af vítapunktinum.

Lestu um leikinn: ÍA 3 -  2 Fylkir

„Það hefði verið gott að sleppa með stig út úr þessu en mér fannst þetta kannski bara sanngjarnt."

„Skaginn spilaði mjög vel í seinni hálfleik og héldu boltanum vel. Þeir teygðu á okkur endalaust, við komumst ekki nægilega nálægt þeim og náðum ekki að klukka þá. Þeir voru betri, sérstaklega í seinni hálfleik."

Fylkir breytti liði sínu nokkuð frá síðasta deildarleik sínum. „Eitt af því sem við reynum að vinna með er að vera svolítið fjölbreyttir og reyna að koma liðum á óvart."

„Við viljum spila töluvert betur en við gerðum í dag, við vorum bara ekki nógu góðir," sagði Atli Sveinn en Fylkir er í fimmta sæti Pepsi Max-deildarinnar með 15 stig úr tíu leikjum.

Hér að ofan má horfa á viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner