Leigh Griffiths, sóknarmaður Celtic, hefur tekið sér frí frá fótbolta í nokkra mánuði vegna vandamála utan vallar.
Hinn 28 ára gamli Griffiths hefur mikið átt við meiðsli að stríða undanfarna mánuði en Brendan Rodgers, stjóri Celtic, segir að hann fái nú frí til að sinna ýmsum vandamálum utan vallar.
Talið er að vandamálin andlegri heilsu Griffiths en stuðningsmenn Celtic hafa sýnt Griffiths mikinn stuðning.
Celtic spilaði Evrópudeildarleik gegn RB Salzburg síðasta fimmtudag og sungu stuðningsmenn nafn hans. Auk þess sem þeir mættu með borða sem á stóð: „Það er allt í lagi að vera ekki í lagi. Þú munt aldrei ganga einn Leigh."
Griffiths sendi frá sér yfirlýsingu á fimmtudag þar sem hann þakkaði fyrir stuðninginn.
'It's ok not to be ok'
— Football on BT Sport (@btsportfootball) December 13, 2018
Celtic fans show their support to striker Leigh Griffiths 💚 pic.twitter.com/SWORGmQZ9N
🗯️ "I thank you all sincerely and want to let you know I'm doing all I can to come back as soon as possible, a better and stronger person." @Leighgriff09 💚https://t.co/nCWH9MY8AG
— Celtic Football Club (@CelticFC) December 13, 2018
Athugasemdir