Isak, Tuchel, Sesko, Amorim, Rabiot, Branthwaite og fleiri góðir í slúðrinu í dag
banner
   fim 15. desember 2022 07:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
„Ég finn ekki orðin til að lýsa þessu"
Mynd: EPA

Randal Kolo Muani gulltryggði Frakkland sæti í úrslitum á HM þegar hann skoraði seinna markið í sigri á Marokkó í gær.


Lestu um leikinn: Frakkland 2 -  0 Marokkó

Þessi 24 ára gamli leikmaður Frankfurt var ný kominn inn á í sínum fjórða landsleik og skoraði sitt fyrsta mark í gær.

„Ég lifi enn í draumaheimi, það er erfitt að vakna. Við áttum okkur á þessu á morgun. Þetta er töfrandi, ég finn ekki orðin til að lýsa þessu." sagði Randal Kolo Muani.

„Eins gott að ég elti Mbappe, hann er sá sem vann alla vinnuna. Ég get verið stoltur af staðsetningunni minni," sagði Muani um markið.

Kolo Muani átti upphaflega ekki að vera í franska hópnum en var kallaður inn vegna meiðsla Christopher Nkunku.

HM hringborðið - Þeir bestu leika til úrslita
Athugasemdir
banner
banner
banner