Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Brynjar Björn útskýrir útlendingafjöldann
Ómar Ingi: Legghlífunum hans var stolið
Vill breytingar eftir tæklingu Grétars - „Getur eyðilagt ferla hjá mönnum"
Sætasti strákurinn á ballinu - „Hann er 39 ára í líkama sextugs manns"
Bræður eigast við í bikarnum - Síðasta tækifærið að mæta Birki
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
   mið 16. júní 2021 21:08
Anton Freyr Jónsson
Jói Kalli: Ekki hægt að tala um það í einhverju viðtali
Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari ÍA.
Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari ÍA.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Við vorum bara klaufar. KA menn komu sér í forystu snemma leiks og það var virkilega svekkjandi. Við ætluðum að vera töluvert öflugri en þetta," voru fyrstu viðbrögð Jóhannesar Karls Guðjónssonar, þjálfara ÍA, eftir tap gegn KA á heimavelli í dag.

Lestu um leikinn: ÍA 0 -  2 KA

Skagamenn eru á botni deildarinnar með fimm stig en liðið er búið að tapa þremur leikjum í röð í deildinni núna.

„Við erum ekki sáttir með þetta en taflan lýgur ekkert. Við erum með fimm stig á botninum og það er undir okkur komið að lagfæra það. Það er ekkert hægt að vera tala um það í einhverju viðtali hérna, við þurfum að gera það þegar við komum inn á völlinn."

Óttar Bjarni Guðmundsson fékk rautt spjald í kvöld en Skagamenn hafa mikið verið að láta reka sig út af í leikjum á þessi tímabili.

„Óttar er bara klaufi þegar hann fer í tæklinguna og ég held að þetta hafi bara verið réttilega rautt spjald. Það er gríðarlega svekkjandi að missa Óttar Bjarna útaf og í leikbann líka. Við þurfum að vera klókari en þetta og þetta eru vonbrigði."

Viðtalið í heild sinni má sjá í sjónvarpinu hér að ofan
Athugasemdir
banner
banner
banner