Man Utd líklegast að fá Olise - Man Utd til í að hlusta á tilboð í Rashford - Juve leiðir kapphlaupið um Greenwood
   lau 16. júlí 2022 14:22
Brynjar Ingi Erluson
Zinchenko ferðast með Man City til Houston
Oleksandr Zinchenko er í hópnum
Oleksandr Zinchenko er í hópnum
Mynd: EPA
Úkraínski leikmaðurinn Oleksandr Zinchenko er í leikmannahópi Manchester City sem er á leið til Houston í Bandaríkjunum en félagið tilkynnti 26-manna hópinn í dag.

Arsenal er í viðræðum við Man City um Zinchenko og er gert ráð fyrir því að hann verði leikmaður Lundúnarliðsins á næstu dögum, en hann er engu að síður í hópnum hjá City fyrir ferðalag liðsins til Houston í Bandaríkjunum.

Aymeric Laporte, Phil Foden, Ilkay Gündogan og John Stones ferðast ekki með hópnum.

Manchester City mætir Club America í Houston eftir fimm daga áður en liðið spilar við Bayern München þremur dögum síðar í Green Bay.

Bernardo Silva, sem er orðaður við Barcelona, er einnig í hópnum og þá er eru þeir Julian Alvarez, Erling Braut Haaland og Kalvin Phillips einnig á sínum stað.

Hópurinn: Kyle Walker, Rúben Dias, Kalvin Phillips, Nathan Aké, Erling Haaland, Jack Grealish, Oleksandr Zinchenko, Rodrigo, Kevin De Bruyne, Stefan Ortega, Julian Alvarez, Bernardo Silva, Riyad Mahrez, João Cancelo, Ederson, Scott Carson, Liam Delap,
Kayky, Luke Mbete, Cole Palmer, James McAtee, Josh Wilson-Esbrand, Oscar Bobb, Rico Lewis, Finley Burns, Ben Knight.
Athugasemdir
banner