Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 16. október 2020 07:00
Victor Pálsson
Moses: Kom ekki til greina að vera áfram
Mynd: Getty Images
Victor Moses, leikmaður Chelsea, hefur skrifað undir samning við Spartak Moskvu í rússnensku úrvalsdeildinni.

Moses er 29 ára gamall vængmaður sem getur þó einnig spilað í bakverði og vængbakverði.

Nígeríumaðurinn er alls ekki inni í myndinni hjá Frank Lampard, stjóra Chelsea, og gerði lánsamning við Spartak út tímabilið.

„Þetta gerðist mjög hratt fyrir sig og ég er hæstánægður með tækifærið í Rússlandi. Þetta er ný áskorun fyrir mig," sagði Moses eftir skiptin.

„Það var nokkuð augljóst að ég myndi ekki fá þær mínútur sem ég vildi á tímabilinu og kom því ekki til greina að vera áfram."

„Chelsea hefur styrkt sig mikið síðustu mánuði og töldum við það rétt að róa á önnur mið."

Athugasemdir
banner
banner
banner