Guimaraes, Isak, Kimmich, Diaz, Branthwaite, Mainoo og fleiri góðir í slúðri dagsins
   sun 16. desember 2018 12:30
Arnar Helgi Magnússon
Sameiginlegt lið Liverpool og Man Utd að mati lesenda BBC - Einn frá United
Salah og Mane eru báðir í liðinu
Salah og Mane eru báðir í liðinu
Mynd: Getty Images
Breski fjölmiðlarisinn, BBC hefur undanfara daga hitað upp fyrir stórleik umferðinnar í ensku úrvalsdeildinni.

Lesendur þeirra hafa stillt upp sameiginlegu liði þessara tveggja liða og var síðan heildarniðurstaðan sett saman af blaðamönnum BBC, eftir því hverjir fengu flest atkvæði.

Flautað verður til leiks í leik Liverpool og Manchester United klukkan 16:00 í dag.

Mo Salah var oftast valinn í sameiginlega liðið eða í 97% tilfella. Næst vinsælastir voru Virgil Van Djik (94%) og Trent Alexander-Arnold (83%).

Varnarlína Liverpool er í sameiginlega liðinu eins og hún leggur sig. Það sama má segja um sóknarlínu Liverpool en Mane, Salah og Firmino hafa samtals skorað tuttugu mörk.

Eini leikmaður Manchester United sem að kemst í liðið er Paul Pogba. Hann er á miðsvæðinu með James Milner og Naby Keita.
Anthony Martial komst næst því af útileikmönnum Unitd að verða valinn í liðið en hann var þó langt frá tríóinu í Liverpool.

Alisson er í markinu en hann fékk 6% fleiri atkvæði en David De Gea.

Sameiginlegt lið Liverpool og Manchester United að mati lesenda BBC má sjá hér að neðan.
Athugasemdir
banner
banner
banner