Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 16. desember 2022 11:18
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Sögur um Griezmann og Man Utd mættar á nýjan leik
Antoine Griezmann.
Antoine Griezmann.
Mynd: EPA
Fjölmiðlar í Frakklandi segja núna frá því að Manchester United sé að skoða það að fá Antoine Griezmann.

Griezmann hefur oft verið orðaður við United í gegnum tíðina en það eru nokkur ár síðan síðast.

Griezmann hefur verið að spila frábærlega á heimsmeistaramótinu með Frakklandi. Hann hefur verið að spila fremst á miðjunni og líklega verið besti maður liðsins heilt yfir.

Þessi 31 árs gami leikmaður hefur ekki fundið sig með félagsliðum sínum síðustu árin, en þrátt fyrir það er Man Utd að íhuga það að reyna fá hann samkvæmt Mediafoot.

Griezmann er núna á mála hjá Atletico Madrid en það er möguleiki á því að hann fari til Englands í janúar.
Athugasemdir
banner
banner