Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 17. janúar 2019 19:30
Ívan Guðjón Baldursson
Ashley Cole að skrifa undir hjá Derby
Mynd: Getty Images
Enskir og bandarískir fjölmiðlar halda því fram að vinstri bakvörðurinn Ashley Cole sé að fara að skrifa undir samning við Frank Lampard og félaga í Derby County.

Samningurinn myndi gilda út tímabilið og gefur Cole tækifæri til að starfa aftur með góðvini sínum Lampard, en þeir voru samherjar bæði í enska landsliðinu og hjá Chelsea.

Cole gerði garðinn frægan með Arsenal og Chelsea áður en hann flutti vestanhafs og gekk til liðs við Los Angeles Galaxy.

Samningur Cole við LA Galaxy rann út í fyrra og er bakvörðurinn búinn að vera samningslaus í nokkra mánuði.

Derby er að gera fína hluti undir stjórn Lampard og er í umspilsbaráttu Championship deildarinnar.
Athugasemdir
banner