Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 17. janúar 2023 23:33
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Lopetegui: Við skoruðum fleiri mörk
Mynd: Getty Images

Julen Lopetegui stjóri Wolves var pirraður eftir að liðið hans féll úr leik í enska bikarnum eftir tap gegn Liverpool í kvöld.


Hann var þó sérstaklega svekktur í ljósi þess að honum fannst að liðið átti sigurinn skilið í fyrri leiknum eftir að mark undir lok leiksins var dæmt af.

„Ég er sorgmæddur og pirraður að hafa ekki komist áfram. Ef maður lítur til baka á þessa tvo leiki þá áttum við meira skilið en svona er fótboltinn. Við skoruðum fleiri mörk en andstæðingurinn í fyrri leiknum. Við urðum að spila þennan leik - það vita allir af hverju," sagði Lopetegui.

Hann var mjög ósáttur með spilamennsku sinna manna í fyrri hálfleik í kvöld.

„Við fengum á okkur furðulegt mark í fyrri hálfleik. Við spiluðum vel til að byrja með, eftir markið þjáðumst við mikið. Við töpuðum leiknum í fyrri hálfleik," sagði Lopetegui.

„Ég var ekki ánægður, við breyttum aðeins og í seinni hálfleik var ég ánægður með leikmennina. Þeir settu allt púður í leikinn, frábær karakter. Því miður skoruðum við ekki, það er svekkjandi fyrir stuðningsmenn þar sem við börðumst fyrir þá. Nú einbeitum við okkur 100% að deildinni."


Athugasemdir
banner