Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mið 17. mars 2021 12:30
Magnús Már Einarsson
Chelsea án Mount og Jorginho í leiknum mikilvæga í kvöld
Mason Mount.
Mason Mount.
Mynd: Getty Images
Chelsea verður án miðjumannanna Jorginho og Mason Mount í síðari leiknum gegn Atletico Madrid í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í kvöld.

Mount og Jorginho eru báðir í leikbanni í leiknum í kvöld.

Þeir félagar hafa skorað sex af þeim þrettán mörkum sem Chelsea hefur skorað síðan Thomas Tuchel tók við liðinu.

„Þetta eru tveir lykilmenn fyrri okkur, sérstaklega Mason með sóknar hæfileika sína. Þeir hafa verið mikilvægir fyrir okkur hingað til en við erum með hóp og þurfum að aðlagast og finna lausnir," sagði Tuchel.

Chelsea er 1-0 yfir eftir fyrri leikinn en Atletico Madrid kemur í heimsókn á Stamford Bridge í kvöld.

Sjá einnig:
Meistaraspáin fyrri kvöldið
Athugasemdir
banner
banner