Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 17. mars 2021 16:23
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Frakkar með rosalegt lið - Hausverkur að velja byrjunarlið
Icelandair
Camavinga er ótrúlega efnilegur leikmaður. Hann er 18 ára og á þrjá A-landsleiki að baki fyrir Frakkland.
Camavinga er ótrúlega efnilegur leikmaður. Hann er 18 ára og á þrjá A-landsleiki að baki fyrir Frakkland.
Mynd: Getty Images
Frakkland kemur inn á Evrópumót U21 landsliða með gríðarlega sterkan leikmannahóp.

Frakkar eru með okkur Íslendingum í riðli en í riðlinum eru einnig Danir og Rússar. Við mætum franska liðinu í lokaleik riðlakeppninnar 31. mars.

Frakkar hafa úr mörgum frábærum leikmönnum að velja og verður það gríðarlega erfitt verkefni fyrir þjálfara þeirra að stilla upp í byrjunarlið. Svo sannarlega hausverkur.

Fréttaritari Fótbolti.net tók þeirri áskorun að stilla upp í sterkasta byrjunarlið sem Frakkar geta stillt upp á mótinu.

Hér að neðan má sjá útkomuna. Frábærir leikmenn í öllum stöðum og kemst til að mynda Pierre Kalulu, varnarmaður AC Milan, ekki í þetta byrjunarlið.

Eins og áður kemur fram þá mætir Ísland þessu ógnarsterka liði í lokaleik riðlakeppninnar.


Athugasemdir
banner
banner
banner