Varane, Diaz, Matip, Yamal, Davies og Rashford koma við sögu
   sun 17. mars 2024 18:35
Brynjar Ingi Erluson
Tilfinningarík stund í Manchester
Mynd: Getty Images
Amad Diallo var hetja Manchester United í einhverjum ótrúlegasta erkifjendaslag tímabilsins en hann skoraði sigurmarkið í 4-3 sigri á Liverpool í framlengingu á Old Trafford í 8-liða úrslitum í dag.

United var betri aðilinn stærstan hluta leiksins og verðskuldaði sigurinn.

Liðið lenti tvisvar undir í leiknum en lagði ekki árar í bát. Í uppbótartíma framlengingar kom sigurmarkið frá Fílabeinsstrendingnum Amad Diallo og ætlaði þakið að rifna af Old Trafford í kjölfarið.

Hér fyrir neðan má sjá þessa rafmögnuðu stemningu er Diallo skorar og fagnar marki sínu.


Athugasemdir
banner
banner
banner