Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   lau 17. júlí 2021 20:18
Victor Pálsson
Patrik spilaði seinni hálfleik fyrir úrvalsdeildarlið Brentford
Mynd: Getty Images
Patrik Sigurður Gunnarsson spilaði síðari hálfleikinn með liði Brentford í dag sem mætti AFC Wimbledon í æfingaleik.

Brentford undirbýr sig nú fyrir keppni í ensku úrvalsdeildinni en liðið tryggði sér sæti í efstu deild í vetur.

Patrik spilaði allan síðari hálfleikinn fyrir Brentford en liðið hafði betur 1-0. Eina markið kom í fyrri hálfleik.

Patrik er fæddur árið 2000 en hann hefur leikið með Southend, Viborg og Silkeborg á láni frá Brentford.

Hann gekk fyrst í raðir enska félagsins frá Breiðablik árið 2018 og á að baki 12 landsleiki fyrir U21 landslið Íslands.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner