Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 17. júlí 2021 11:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Vandræðaleg mistök Adidas - Skrifuðu nafn leikmanns Man Utd vitlaust
Mynd: Getty Images
Adidas og Manchester United tilkynntu á dögunum opinberlega nýjan aðalbúning United fyrir komandi tímabil.

Eins og venjulega eru skiptar skoðanir um útlit búningsins en á heimasíðu United segir að við hönnun á treyjunni hafi verið horft til sjöunda áratugarins og búninga sem goðsagnir félagsins á borð við George Best, Sir Bobby Charlton og Denis Law klæddust.

Það var þó einn leikmaður United sem lét skoðun sína í ljós á Twitter í gær en þó ekki útaf búningnum.

Mille Turner er leikmaður kvennaliðs Man Utd en hún er einnig sjálf á samning hjá Adidas.

Adidas gerði þau vandræðalegu mistök að skrifa nafnið hennar vitlaust á heimasíðu sinni. Ekki smá innsláttarvilla heldur var hún kölluð Amy Turner.

Twitter færsluna hennar má sjá hér að neðan.


Athugasemdir
banner
banner
banner