Laust er til umsóknar starf yfirþjálfara hjá Knattspyrnufélagi ÍA (KFÍA). Um er ræða yfirumsjón með um 500 iðkendum knattspyrnufélagsins, jafnt stelpur sem strákar, sem æfa knattspyrnu við einar bestu aðstæður á landinu.
Þjálfarar félagsins eru um 30 talsins og mikil tækifæri fyrir réttan aðila til að taka þátt í að þróa og móta framtíð KFÍA, móta framtíðar starfsumhverfi með góðu samstarfsfólki og taka þátt í öflug starfi á Akranesi. Samhliða starfinu er gert ráð fyrir að viðkomandi þjálfi hjá félaginu.
KFÍA leitar að kraftmiklum leiðtoga til að taka að sér yfirþjálfara starf félagsins. Viðkomandi er ábyrgur fyrir útfærslu á afreks- og uppeldisstefnu félagsins í samstarfi við framkvæmdastjóra og stjórnir félagsins. Um er að ræða 100% starfshlutfall.
Starfssvið:
- Yfirumsjón með uppeldisstarfi og afreksþjálfun félagsins, í nánu samstarfi við Uppeldissvið félagsins.
- Yfirumsjón með þjálfun og þjálfurum
- Eftirlit með tekjum og kostnaði við uppeldisstarf félagsins, í samstarfi við framkvæmdastjóra
- Skipulagning á æfingatöflum félagsins, vetur og sumaræfingar
- Taka þátt í að móta og skipuleggja afreksstarfs félagsins
- Skipulagningu og verkaskipting aðstoðarþjálfara
- Skipuleggja foreldrafundi og starf foreldraráða, í samstarfi við framkvæmdarstjóra
- Þjálfun samhliða yfirþjálfarahlutverkinu
- Þátttaka í verkefnum innan félagsins varðandi mót og viðburði á vegum þess.
- Önnur tilfallandi störf út frá skrifstofu félagsins, unnin í samráði við framkvæmdar- og skrifstofustjóra félagsins
- Yfirumsjón með þjálfun og þjálfurum félagsins nær til allra flokka á vegum félagsins, ef frá eru taldir meistaraflokkar karla og kvenna. Þetta skal unnið í samráði við framkvæmdarstjóra félagsins og uppeldissvið.
Menntunar og hæfniskröfur
- UEFA - A þjálfaragráða er skilyrt af KSÍ eða þarf að vera í farvatninu
- Reynsla af þjálfun nauðsynleg
- Góðir skipulags- og stjórnunarhæfileikar og hæfni í mannlegum samskiptum
- Sjálfstæði í starfi og hæfileiki til að vinna með öðrum
- Drifkraftur og frumkvæði
- Hæfileiki til að tjá sig í rituðu og töluðu máli
- Brennandi áhugi á knattspyrnu
- Jákvæðni og vera tilbúin að takast á við nýjungar
Áhugasamir vinsamlegast sendi inn umsókn og ferilskrá á [email protected] fyrir 31. ágúst 2018. Hægt er að hafa samband við Sigurð Þór Sigursteinsson framkvæmdarstjóra Knattspyrnufélags ÍA í síma 862-6700 eða í gegnum tölvupóst, [email protected] ef frekari upplýsinga er óskað.
Athugasemdir