Tottenham verður án lykilmanna þegar liðið mætir Inter í Meistaradeildinni klukkan 16:55 á morgun.
Dele Alli og Hugo Lloris eru báðir ennþá fjarri góðu gamni vegna meiðsla en þeir voru ekki með í 2-1 tapinu gegn Liverpool um helgina.
Nú síðdegis bárust síðan fréttir af því að varnarmennirnir Toby Alderweireld og Kieran Trippier hafi ekki ferðast með Tottenham til Ítalíu.
Að auki er Moussa Sissoko búinn að vera á meiðslalistanum að undanförnu og hann verður ekki með.
Athugasemdir