Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 17. september 2018 12:50
Magnús Már Einarsson
HK bikarmeistari í 3. flokki karla SV
Mynd: HK
HK varð um helgina bikarmeistari í 3. flokki karla á Suð-Vesturlandi en liðið lagði ÍR 4-1 í úrslitaleik á Hertz vellinum í Breiðholti.

Breki Muntaga, Ívar Orri Gissurarson, Valdimar Einarsson og Ari Sigurpálsson skoruðu mörk HK í leiknum.

Á leið sinni í úrslitaleikinn sigraði HK lið Þróttar, Stjörnunnar, Breiðabliks og ÍA/Skallagríms.

Þjálfarar HK eru Þórhallur Dan Jóhannsson og Jakob Hallgeirsson.
Athugasemdir
banner
banner