Það er mikil eftirvænting fyrir leikjum dagsins í Pepsi-deild kvenna þar sem næstsíðasta umferð tímabilsins fer fram.
Topplið Breiðabliks getur tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn með sigur gegn Selfyssingum í Kópavogi en Þór/KA er í öðru sæti, fimm stigum eftir.
Akureyringar mæta Val í stórleik á Akureyri en Valsstúlkur ætla að stela þriðja sætinu af Stjörnunni sem er tveimur stigum fyrir ofan.
Stjarnan heimsækir FH sem féll í síðustu umferð en Grindavík og KR eru ennþá í fallbaráttunni og mætast í hálfgerðum úrslitaleik um hvort liðið heldur sér uppi.
Viðureign Blika og Selfyssinga verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport þar sem hægt verður að sjá Blikastúlkur fagna titlinum takist þeim að brjóta agað lið Selfyssinga á bak aftur.
Leikur KR-inga gegn Grindavík verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 2.
Pepsi-deild kvenna
17:00 Þór/KA-Valur (Þórsvöllur)
17:00 KR-Grindavík (Stöð 2 Sport 2 - Alvogenvöllurinn)
17:00 FH-Stjarnan (Kaplakrikavöllur)
17:00 ÍBV-HK/Víkingur (Hásteinsvöllur)
17:00 Breiðablik-Selfoss (Stöð 2 Sport - Kópavogsvöllur)
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir