Eiginkona Morgan Schneiderlin, miðjumanns Everton, segir að sinn maður sé „sterkasta persóna" sem hún þekki eftir að hann spilaði syrgjandi gegn West Ham í gær.
Schneiderlin spilaði leikinn, sem Everton tapaði 1-3, þrátt fyrir að faðir hans hafi verið nýfallinn frá.
Schneiderlin var tekinn af velli skömmu fyrir leikhlé en Marco Silva, stjóri Everton, segir að skiptingin hafi aðeins verið af taktískum ástæðum.

Camille heitir konan og segir á Instagram að eiginmaður sinn hafi ekki gert sitt allra besta fyrir liðið eftir að hafa misst föður sinn.
Einhverjir stuðningsmenn Everton hafa efast um hollustu Schneiderlin en Camille skýtur á þá.
„Ég vona það innilega að fólk efist ekki um þig aftur eða telji að þú sért ekki að gera sitt besta á vellinum. Það fólk veit ekki hvernig persóna, atvinnumaður og vinnuhestur þú ert," skrifar Camille.
„Þú ert sterkasta persóna sem ég þekki, þú sagðir ekkert en hélst áfram að sýna vilja og baráttu til að spila. Systir þín, móðir og fjölskylda voru í Frakklandi og ég veit hversu erfitt þetta var. Hausinn var kannski ekki alveg rétt stilltur en þú reyndir þitt besta."
Everton hefur sex stig eftir fimm umferðir í ensku úrvalsdeildinni.
Athugasemdir