Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 17. september 2022 07:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Smith Rowe að kljást við erfið meiðsli
Mynd: EPA

Emile Smith Rowe leikmaður Arsenal hefur verið að kljást við erfið meiðsli að undanförnu og Mikel Arteta stjóri liðsins hefur áhyggjur.


Þessi 22 ára gamli Englendingur hefur ekki náð að byrja neinn leik á þessu tímabili. Hann er að berjast við einhver meiðsli í nára um þessar mundir en það eru mikil óvissa með þessi meiðsli.

„Ég hef áhyggjur af þeirri staðreynd að hann er ekki til taks og þegar hann hefur reynt að æfa hefur hann ekki verið alveg 100% laus við verki," sagði Arteta.

„Það er svekkjandi að hann geti ekki farið í landsliðsverkefni. Hann er krakki sem elskar að spila fótbolta, það er það stærsta í hans lífi. Þegar hann getur það ekki, sérstaklega eftir gott tímabil í fyrra, er það mjög erfitt."


Athugasemdir
banner
banner
banner