Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 17. nóvember 2021 14:30
Elvar Geir Magnússon
Juventus undirbýr janúartilboð í Vlahovic
Dusan Vlahovic, sóknarmaður Fiorentina.
Dusan Vlahovic, sóknarmaður Fiorentina.
Mynd: EPA
La Gazzetta dello Sport segir að Juventus sé að undirbúa tilboð í Dusan Vlahovic, sóknarmann Fiorentina, í janúarglugganum.

Mikill áhugi er á þessum 21 árs sóknarmanni, meðal annars frá félögum í ensku úrvalsdeildinni.

Sagt er að Fiorentina vilji fá um 60-70 milljónir evra fyrir leikmanninn og umboðsmenn hans vilji að hann fái samning sem færi honum 6 milljónir evra á ári.

Vlahovic hafnaði samningstilboði frá Fiorentina sem hefði gert hann að launahæsta leikmanni í sögu félagsins.

Hann hefur meðal annars verið orðaður við Tottenham, Manchester City og Paris Saint-Germain.
Athugasemdir
banner
banner
banner