Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 18. janúar 2023 18:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Memphis verður að ósk sinni - Fer til Atletico
Mynd: EPA

Memphis Depay vill ólmur fara til Atletico Madrid frá Barcelona en Fabrizio Romano greinir frá því að félögin séu búin að ná samkomulagi.


Hann segir að Memphis Depay muni ganga alfarið til Atletico fyrir rúmar 3 milljónir evra og gera samning til 2028.

Þessi 28 ára gamli sóknarmaður var í byrjunarliðinu í þremur leikjum og kom inn á í tveimur með hollenska landsliðinu á HM í Katar en hefur aðeins komið við sögu í fjórum leikjum hjá Barcelona á þessari leiktíð.

Félögin hafa verið í viðræðum undanfarið og hafa komist að samkomulagi, nú er bara beðið eftir staðfestingu.

Þessi frétt var uppfærð.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner