Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 18. janúar 2023 22:50
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Spjaldið á Casemiro vendipunktur - „Gat ekki farið verr"
Mynd: Getty Images

Jamie Redknapp sérfræðingur hjá Sky Sports segir að gula spjaldið sem Casemiro fékk hafi tekið allan kraft úr United liðinu í kvöld.


„Þetta hefði ekki getað farið verr fyrir Man Utd. Við töluðum um Casemiro fyrir leikinn, ekki fá spjald, ekki lenda í neinu veseni. Það var mikilvægt því þeir þurfa á honum að halda á sunnudaginn," sagði Redknapp.

„Það var eins og allt hafi hrunið þegar hann fékk spjaldið, það hafði svo mikil áhrif. Þeir vissu að mikilvægasti leikmaðurinn þeirra, varnarlega, verður fjarverandi. Þetta var stundarbrjálæði, þú sást að hann var reiður út í Bruno sem hætti við að fara í tæklingu, þess vegna var hann einn á einn gegn Zaha og fékk spjald."

Hann hefði ekki verið hissa þó Casemiro hefði fengið rautt spjald fyrir þetta brot.

„Þetta hefði getað verið rautt spjald. Þetta var kærulaust. Ég sá Mikel Arteta fyrri mér dansa í stofunni þegar þetta gerðist hann er svo mikilvægur fyrir United. Þeir eru ekki með neinn sem gerir það sem hann gerir."


Athugasemdir
banner
banner
banner