Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 18. apríl 2019 14:45
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Man Utd ætlar ekki að senda Butt í frí frá störfum
Mynd: Getty Images
Manchester United ætlar ekki að senda Nicky Butt í frí frá störfum hjá félaginu.

Butt er 44 ára og starfar í dag sem yfirmaður unglingaakademíu Manchester United.

Butt var í haldi lögreglu á þriðjudagskvöld. Hann er grunaður um heimilisofbeldi gagnvart fyrrum eiginkonu sinni. Þrír starfsmenn lögreglunnar mættu á heimilið sem Butt heimsækir reglulega, til að hitta tvö börn sem þau eiga saman. Butt var færður í fangaklefa en var sleppt eftir yfirheyrslur, hann mun mæta fyrir dóm síðar.

Butt segist sjálfur vera saklaus.

Sjá einnig: Butt sagður ákærður fyrir heimilisofbeldi.
Athugasemdir
banner
banner