Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   sun 18. júlí 2021 08:30
Victor Pálsson
Telles spenntur fyrir tímabilinu í Manchester
Mynd: EPA
­Það er útlit fyrir að Alex Telles sé ekki á förum frá Manchester United eins og sögusagnirnar hafa fjallað um.

Roma er orðað við þennan 28 ára gamla bakvörð sem festi sig ekki í sessi á Old Trafford á sínu fyrsta tímabili.

Telles segist þó vera ánægður í herbúðum Man Utd og er ekki að leita annað.

„Það er ánægjulegt að vera hjá Manchester United og hefja mitt annað tímabil," sagði Telles.

„Við vorum mjög nálægt því að vinna titil á síðustu leiktíð svo við byrjum þetta tímabil metnaðarfullir."

„Ég vil sýna mína vinnu hjá þessu félagi og hvers ég er virði."
Athugasemdir
banner
banner