Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 19. janúar 2019 17:51
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Klopp: Risastór úrslit fyrir okkur
Mynd: Getty Images
„Þetta er mikill léttir," sagði Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, eftir 4-3 sigur á Crystal Palace í ensku úrvalsdeildinni. „Við vissum að þetta yrði erfiður leikur, af mörgum ástæðum."

„Crystal Palace gerir yfirleitt vel gegn Liverpool. Þeir eru mjög sterkir í skyndisóknum og í föstum leikatriðum. Wilfried Zaha er í heimsklassa."

Liverpool var 1-0 undir í hálfleik en sýndi karakter í síðari hálfleik.

„Við urðum að vera jákvæðir, það var ekki mikið áfall að vera einu marki undir. Við gerðum það sem við þurftum að gera í seinni háflleiknum."

Liverpool er nú aftur komið með sjö stiga forskot á toppnum, en Manchester City getur aftur minnkað muninn niður í fjögur stig á morgun.

„Þetta eru risastór úrslit fyrir okkur, við erum með 60 stig sem er klikkun. Ég er mjög stoltur. Við verðum að nota næstu daga í að jafna okkur líkamlega."

Klopp hrósaði svo Mohamed Salah, sem skoraði tvennu í leiknum.

„Hann er í heimsklassa, svo einfalt er það," sagði Klopp um Salah.
Athugasemdir
banner