Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 19. janúar 2023 09:11
Elvar Geir Magnússon
West Ham í viðræðum við Aston Villa um kaup á Ings
Danny Ings, sóknarmaður Aston Villa.
Danny Ings, sóknarmaður Aston Villa.
Mynd: EPA
West Ham er í viðræðum við Aston Villa um möguleg kaup á sóknarmanninum Danny Ings.

Aðeins Úlfarnir hafa skorað færri mörk en þau fimmtán sem West Ham hefur skorað á tímabilinu og David Moyes vill styrkja sóknarleikinn til að klifra upp töfluna.

Núgildandi samningur Ings við Villa rennur út 2024 en rætt er um 12 milljóna punda kaupverð.

Ings er þrítugur og hefur leikið þrjá landsleiki fyrir England, hann er með sjö mörk í 21 leik á tímabilinu.

Mörkin hans sex í úrvalsdeildinni eru einu marki meira en tveir helstu sóknarmenn West Ham, Michael Antonio og Gianluca Scamacca, hafa skorað saman. Scamacca var keyptur á yfir 30 milljónir punda síðasta sumar.

West Ham er komið niður í fallsæti í ensku úrvalsdeildinni.

Fyrir utan tímann hjá Liverpool, þar sem meiðsli settu strik í reikninginn, hefur Ings sannað sig sem stöðugur markaskorari í úrvalsdeildinni. Hann spilaði áður fyrir Burnley og Southampton en gekk í raðir Villa 2021. Hann byrjaði síðast úrvalsdeildarleik fyrir Villa þann 13. nóvember.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 34 24 5 5 82 26 +56 77
2 Man City 33 23 7 3 80 32 +48 76
3 Liverpool 34 22 8 4 75 34 +41 74
4 Aston Villa 34 20 6 8 71 50 +21 66
5 Tottenham 32 18 6 8 65 49 +16 60
6 Man Utd 33 16 5 12 51 50 +1 53
7 Newcastle 33 15 5 13 69 54 +15 50
8 West Ham 34 13 9 12 54 63 -9 48
9 Chelsea 32 13 8 11 61 57 +4 47
10 Bournemouth 34 12 9 13 49 60 -11 45
11 Brighton 33 11 11 11 52 54 -2 44
12 Wolves 34 12 7 15 46 54 -8 43
13 Fulham 34 12 6 16 50 54 -4 42
14 Crystal Palace 34 10 9 15 44 56 -12 39
15 Brentford 34 9 8 17 52 59 -7 35
16 Everton 34 11 8 15 36 48 -12 33
17 Nott. Forest 34 7 9 18 42 60 -18 26
18 Luton 34 6 7 21 47 75 -28 25
19 Burnley 34 5 8 21 37 69 -32 23
20 Sheffield Utd 34 3 7 24 33 92 -59 16
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner