Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 19. mars 2024 13:11
Elvar Geir Magnússon
Ástríðan hættir göngu sinni
Mynd: Ástríðan
Hlaðvarpsþátturinn Ástríðan sem notið hefur mikilla vinsælda hér á Fótbolta.net undanfarin ár er hættur göngu sinni og verður því ekki á dagskrá í sumar.

Sverrir Mar Smárason, Gylfi Tryggvason og Óskar Smári Haraldsson hafa séð um þáttinn en í honum var fjallað um 2. og 3. deild karla.

Í yfirlýsingu frá þeim félögum kemur fram að þeir hafi ákveðið að hætta umfjöllun sinni, að minnsta kosti tímabundið.

Við á Fótbolta.net þökkum þeim fyrir frábært starf sem hefur svo sannarlega lyft upp umræðu og litað neðri deildirnar. Áhugasamir sem hafa áhuga á að taka við keflinu og halda uppi umræðu um þessar deildir geta haft samband við okkur.

Hér er yfirlýsing Ástríðunnar:
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner