Varane, Diaz, Matip, Yamal, Davies og Rashford koma við sögu
   þri 19. mars 2024 18:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Courtois nálgaðist endurkomu en meiddist aftur illa
Mynd: EPA

Thibaut Courtois var að ná sér af krossbandslitum á vinstra hné en er aftur kominn á meiðslalistann en í þetta sinn meiddist hann illa á hægra hné.


Hann yfirgaf æfingu Real Madrid í morgun í tárum en talið er að hann verði frá í um tvo mánuði sem þýðir að tímabilinu er lokið hjá belgíska markverðinum.

Ákvörðun verður tekin í framhaldinu um hvort hann þurfi að fara í aðgerð en hann verður líklega klár í slaginn á undirbúningstímabilinu fyrir næstu leiktíð.

Hann sleit krossband í ágúst ásíðasta ári og hefur ekki spilað síðan.

Úkraínski markvörðurinn Andriy Lunin verður áfram markvörður Real Madrid í fjarveru Courtois.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner