Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 19. nóvember 2021 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Björgvin Máni á reynslu hjá Örgryte
Björgvin Máni Bjarnason (t.v.) mun næstu daga æfa með Örgryte í Svíþjóð
Björgvin Máni Bjarnason (t.v.) mun næstu daga æfa með Örgryte í Svíþjóð
Mynd: KA
Björgvin Máni Bjarnason, leikmaður KA, mun næstu daga æfa með sænska B-deildarfélaginu Örgryte.

Björgvin er fæddur árið 2004 og þykir gríðarlegt efni en hann lék með KA-mönnum í Lengjubikarnum fyrr á þessu ári. Þá hefur hann æft með yngri landsliðum Íslands.

Hann er nú mættur til Svíþjóðar þar sem hann mun æfa með Örgryte í viku. Björgvin fór einnig á reynslu fyrir tveimur árum hjá danska liðinu Midtjylland.

Örgryte er í sænsku B-deildinni og situr í 8. sæti deildarinnar með 37 stig.
Athugasemdir
banner
banner