Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 20. desember 2022 05:55
Brynjar Ingi Erluson
England í dag - Boltinn byrjar að rúlla
Newcastle mætir Bournemouth
Newcastle mætir Bournemouth
Mynd: Getty Images
Sextán liða úrslit enska deildabikarsins hefjast í kvöld með fjórum leikjum en fimm úrvalsdeildarlið eru í eldlínunni.

Enski boltinn hefur verið í fríi síðasta mánuðinn vegna heimsmeistaramótsins í Katar en nú hefst smá upphitun fyrir ensku úrvalsdeildina og það er auðvitað deildabikarinn.

Southampton mætir Lincoln City á meðan Eddie Howe og lærisveinar hans í Newcastle mæta Bournemouth, en þar mætir Howe sínu gamla félagi.

Wolves spilar við Gillingham á meðan Leicester heimsækir MK Dons en allir leikirnir fara fram klukkan 19:45.

Leikir dagsins:
19:45 Southampton - Lincoln City
19:45 Newcastle - Bournemouth
19:45 Wolves - Gillingham
19:45 MK Dons - Leicester
Athugasemdir
banner
banner