Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mán 21. janúar 2019 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Denis Suarez virðist spenntur fyrir Arsenal
Mynd: Getty Images
Útlit er fyrir að Arsenal takist að fá Denis Suarez lánaðan frá Barcelona til að hjálpa félaginu í baráttunni um Meistaradeildarsæti.

Arsenal fær ekki pening til leikmannakaupa og þess vegna er Suarez einn af örfáum leikmönnum sem eru orðaðir við félagið.

Suarez virðist afar spenntur fyrir félagaskiptunum og tóku fylgjendur hans á samfélagsmiðlum eftir því á laugardaginn, þegar Arsenal lagði Chelsea að velli á Emirates leikvanginum.

Suarez var iðinn við að líka við hinar ýmsu færslur í kringum leikinn sem skiptir stuðningsmenn Arsenal gífurlega miklu máli, enda um erkifjendaslag að ræða.
Athugasemdir
banner
banner