Ísland-Nígería á morgun
Spennan magnast fyrir leik Íslands og Nígeríu sem fer fram í Volgograd klukkan 15:00 á morgun.
Jóhann Berg Guðmundsson meiddist á kálfa í leiknum gegn Argentínu um síðustu helgi og æfði ekki með íslenska liðinu á Volgograd leikvanginum í dag.
Fótbolti.net spáir því að Instagram stjarnan Rúrik Gíslason komi inn í liðið í hans stað en Rúrik kom inn á sem varamaður fyrir Jóhann gegn Argentínu.
Að öðru leyti reiknar Fótbolti.net með sama byrjunarliði og gegn Argentínu. Ísland spilaði 4-4-2 gegn Gana í vináttuleik fyrir mót en sökum þess hversu vel gekk gegn Argentínu, og að Nígería verður að sækja af krafti, þá reiknar Ísland með 4-4-1-1 líkt og gegn Argentínu.
Leikur Íslands og Nígeríu hefst klukkan 15:00 að íslenskum tíma á morgun.
Athugasemdir