Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Brynjar Björn útskýrir útlendingafjöldann
Ómar Ingi: Legghlífunum hans var stolið
Vill breytingar eftir tæklingu Grétars - „Getur eyðilagt ferla hjá mönnum"
Sætasti strákurinn á ballinu - „Hann er 39 ára í líkama sextugs manns"
Bræður eigast við í bikarnum - Síðasta tækifærið að mæta Birki
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
   lau 21. júlí 2018 21:13
Ester Ósk Árnadóttir
Palli Gísla: Við erum the bad boys og þeir hetjurnar
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Það er alltaf svekkjandi að tapa og við erum kannski búnir að tapa ansi oft," sagði Palli Gísla eftir 0-1 tap á móti HK í dag.

Lestu um leikinn: Magni 0 -  1 HK

Palli var ánægður með spilamennskuna.

Við vorum að spila á móti taplausu liði í efsta sæti og ég held að allir hafi séð að þetta var hörkuleikur. Hlutirnir eru ekki að falla með okkur. Við verðum bara að halda áfram, það er ekkert annað í boði. Það er annað hvort að leggjast niður og grenja eða spýta í lófana."

Magni fékk nokkra góða sénsa til að jafna leikinn.

Við áttum klárlega færi á því að koma boltanum inn en þetta er svolítið stöngin út hjá okkur. Það þýðir ekkert að leggjast niður og væla yfir því það er bara áfram gakk. Við fáum á okkur ódýrt mark að mínu viti, mark sem skilur að í dag og þess vegna erum við the bad boys og þeir hetjurnar." 

Liðið er á botni deildarinnar með 6 stig.

Okkur hlakkar alltaf til að fara að spila en auðvitað er þungt að vera ekki með fleiri stig og fá ekki meira út úr þessum leikjum. Vissulega einhverjir leikir sem við áttum ekkert skilið úr en ég held að Magni þurfi ekki að skammast sín yfir frammistöðunni í flestum leikjunum. Magni er með hörkulið og hörku mannskap þannig ég ætla ekki að grenja yfir því. Ef það er hægt að skamma einhvern þá er það bara mig." 

Magni fær Hauka í heimsókn í næsta leik. 

Við leggjum allt í þetta og reynum að forðast að fá á okkur mörk sem skilja að. Það fækkar alltaf leikjunum en ég vona að það sé enginn hér á Grenivík sem er að gefast upp."
Hægt er að sjá viðtalið í heild sinni í sjónvarpinu hér að ofan.

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner