Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 21. desember 2022 18:00
Brynjar Ingi Erluson
Rúnar Alex áfram í bikarnum
Mynd: Alanyaspor
Íslenski landsliðsmarkvörðurinn Rúnar Alex Rúnarsson er kominn áfram í 16-liða úrslit tyrkneska bikarsins eftir að lið hans, Alanyaspor, vann Eyupspor, 3-2, eftir framlengingu.

Rúnar, sem er á láni hjá Alanyaspor frá Arsenal, er búinn að eiga frábært tímabil með liðinu og heldur nú fínt gengi hans áfram.

Alanyaspor fékk mörg tækifæri til að gera út um leikinn en Koka, leikmaður liðsins, klúðraði tveimur vítaspyrnum.

Staðan var 2-2 eftir venjulegan leiktíma en sigurmark Alanyaspor kom á 113. mínútu í framlengingu og er það því komið í 16-liða úrslit bikarsins.

Rúnar stóð allan tímann í marki Alanyaspor.
Athugasemdir
banner
banner
banner