Varane, Diaz, Matip, Yamal, Davies og Rashford koma við sögu
banner
   fös 22. mars 2024 08:00
Brynjar Ingi Erluson
Vináttulandsleikir: Portúgal skoraði fimm - Samherji Alberts gerði bæði mörk Ítala
Mateo Retegui skoraði bæði mörk Ítalíu
Mateo Retegui skoraði bæði mörk Ítalíu
Mynd: Getty Images
Ítalía og Portúgal unnu bæði eru þau spiluðu vináttulandsleiki í gærkvöldi.

Mateo Retegui, samherji Alberts Guðmundssonar, skoraði bæði mörk Ítalíu í 2-1 sigri á Venesúela.

Genoa-mennirnir áttu stórkostlegt kvöld en Albert skoraði þrennu í 4-1 sigri á Ísrael í umspili um sæti á Evrópumótið.

Portúgal fagnaði þá 5-2 sigri á Svíþjóð í Guimaraes í Portúgal. Rafael Leao, Matheus Nunes, Bruno Fernandes, Bruma og Goncalo Ramos skoruðu mörk heimamanna en Viktor Gyokeres og Gustaf Nilsson mörk Svía.

Portúgal 5 - 2 Svíþjóð
1-0 Rafael Leao ('24 )
2-0 Matheus Nunes ('33 )
3-0 Bruno Fernandes ('45 )
4-0 Bruma ('57 )
4-1 Viktor Gyokeres ('58 )
5-1 Goncalo Ramos ('61 )
5-2 Gustaf Nilsson ('90 )

Ítalía 2 - 1 Venesúela
1-0 Mateo Retegui ('40 )
1-1 Darwin Machis ('43 )
2-1 Mateo Retegui ('80 )
Athugasemdir
banner
banner
banner